Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

664/2006

Reglugerð um norræna innheimtu sekta og sakarkostnaðar.

1. gr.

Sýslumaðurinn á Blönduósi ákveður hvort verða skuli við tilmælum skv. 1. gr. laga um fullnustu refsidóma, sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð, nr. 69, 12. desember 1963. Þá ber sýslumaðurinn á Blönduósi fram tilmæli eftir ákvæði 2. gr. sömu laga.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 20. og 26. gr. laga um fullnustu refsidóma, sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð, o.fl., nr. 69, 12. desember 1963, sbr. lög nr. 70, 13. júní 2006, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 14. júlí 2006.

Björn Bjarnason.

Anna Sigríður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica