Innviðaráðuneyti

1538/2025

Reglugerð um framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum.

1. gr.

Heimilt er að greiða árlega framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna stofnkostnaðar við vatnsveitur á vegum eigenda lögbýla þar sem svo háttar til að ekki er hagkvæmara að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu/aðveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004.

Heildarfjárhæð framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga samkvæmt reglugerð þessari á hverju ári skal ekki fara yfir 36,75 m.kr. sem tekur árlegum breytingum í samræmi við vísitölu byggingarkostnaðar mælda í janúar ár hvert, í samanburði við vísitölu byggingarkostnaðar mælda í október 2025.

Ákvæði reglugerðar þessarar ná til allra lögbýla í landinu þar sem landbúnaður er stundaður í þeim mæli að talist getur búrekstur eða þáttur í búrekstri, að undanskildum þeim jörðum og jarðarhlutum sem liggja innan skipulagðra þéttbýlissvæða sveitarfélaga. Umsækjandi skal, ef óskað er eftir, leggja fram gögn um að hann hafi ÍSAT-númer í búnaðargjaldsskyldri búgrein og virðisaukaskattsnúmer.

Framlög eru ekki veitt til framkvæmda á lögbýlum sem eigi hafa verið setin í tvö ár eða lengur næst á undan framkvæmdaári eða eru nytjuð frá öðrum lögbýlum nema byggingar á jörðinni séu nytjaðar til búrekstrar sem krefst aðgangs að vatni eða fyrir liggi heimild til stofnunar lögbýlis þar samkvæmt jarðalögum.

Heimilt er að veita framlög, þar sem svo háttar til að vatnsveita þjónar bæði lögbýli og fasteignum sem ekki falla undir reglugerð þessa, í réttu hlutfalli við eignarhald.

2. gr.

Umsóknum um framlög til vatnsveituframkvæmda skal skilað rafrænt til Byggðastofnunar fyrir 1. mars á framkvæmdaári. Umsókn skal fylgja mat úttektaraðila, sem Byggðastofnun tilnefnir, á þörf býlisins fyrir viðkomandi framkvæmd og staðfest kostnaðar- og framkvæmdaáætlun. Sé um byggingar að ræða skulu fylgja teikningar. Þá skal umsókn fylgja umsögn viðkomandi sveitarstjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. sé uppfyllt.

Ef ráðast þarf tafarlaust í vatnsveituframkvæmd, s.s. vegna þess að vatnsból þornar í náttúruhamförum eða af öðrum ástæðum, skal meta umsókn sem gilda ef hún berst fyrir 15. nóvember á framkvæmdaári, enda fylgi staðfesting úttektaraðila Byggðastofnunar á að framkvæmd hafi verið nauðsynleg og kostnaður er ekki umfram það sem eðlilegt getur talist. Þóknun úttektaraðila er greidd af umsækjanda en er endurkræf, sbr. 2. mgr. 5. gr.

3. gr.

Byggðastofnun skal fyrir 1. maí ljúka yfirferð umsókna og leggja mat á hvort þær uppfylli skilyrði þess að vera styrkhæfar. Byggðastofnun tilkynnir umsækjendum um niðurstöðu matsins og setur jafnframt þau skilyrði um tæknilegan frágang vatnsveitu sem hún telur nauðsynleg.

Að loknu mati skv. 1. mgr. sendir Byggðastofnun Jöfnunarsjóði sveitarfélaga yfirlit yfir styrkhæfar umsóknir sem borist hafa.

4. gr.

Úttektir á framkvæmdum umsækjenda, staðfestar af úttektaraðila Byggðastofnunar, skulu berast Byggðastofnun fyrir 20. nóvember á framkvæmdaári. Framkvæmdum skal lokið áður en úttekt fer fram.

Vatnsveituframkvæmdum telst lokið er pípur hafa verið grafnar í jörðu og einangraðar eins og fyrir er mælt í verklýsingu og gengið hefur verið frá vatnsbóli þannig að yfirborðsvatn komist ekki í það eða viðeigandi hreinsibúnaði hefur verið komið fyrir, sé þörf á að nota yfirborðsvatn.

Úttektaraðili skal, með samanburði við lýsingu og/eða teikningar sem fylgdu umsókn, fullvissa sig um að verkið sé unnið í samræmi við það sem lýst var í umsókn og þau skilyrði sem sett eru af Byggðastofnun í samræmi við reglugerð þessa.

Ef óskað er eftir framlagi vegna framkvæmda sem ekki hafa verið teknar út fyrir 20. nóvember skal sótt um það að nýju vegna framkvæmda næsta árs. Hafi framkvæmdum verið frestað milli ára verður að sækja um framlag á ný.

5. gr.

Byggðastofnun tekur í lok hvers árs ákvörðun um styrkveitingar vegna einstakra framkvæmda á því ári. Ákvarðanir Byggðastofnunar eru kæranlegar til ráðherra í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga.

Hámarksframlag vegna einstakra framkvæmda má nema allt að 44% stofnkostnaðar við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Ennfremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt, sbr. 4. gr.

Ef Byggðastofnun telur að framkvæmdakostnaður eða einstakir kostnaðarliðir hafi farið fram úr því sem eðlilegt getur talist skal hún miða við lægri fjárhæð í ákvörðun sinni. Byggðastofnun skal tilkynna framkvæmdaaðila um allar slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til að veita skýringar.

Byggðastofnun annast greiðslur framlaga til framkvæmdaaðila. Framlög vegna framkvæmda á næstliðnu ári skulu greidd eigi síðar en 15. febrúar ár hvert.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 22. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 56/2025, sbr. c-lið 5. gr. sömu laga, og öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 180/2016.

Innviðaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica