12. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Að ósk viðkomandi sveitarfélags er eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skylt við útreikning á afkomu og fjárhagsstöðu þess skv. 13. gr. og 14. gr. að undanskilja tekjur, útgjöld, eignir, skuldir og skuldbindingar sem hljótast af eignarhlutum þess í veitu- og orkufyrirtækjum, enda verði það fyrir umtalsvert meiri útgjöldum og/eða beri umtalsvert meiri skuldir en annars væri vegna eignarhlutanna.
Ákvæði 1. mgr. fellur úr gildi 1. janúar 2031.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 64. gr. og 81. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 8. október 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 22. október 2025