Innviðaráðuneyti

584/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 125/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varðar flugrekstur flugrekenda frá þriðja landi.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/659 frá 2. desember 2022 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 452/2014 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslu­meðferð er varða flugrekstur flugrekenda frá þriðja landi, samkvæmt ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 82/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 151.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. maí 2025.

 

F. h. r.

Nína Guðríður Sigurðardóttir.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica