Innviðaráðuneyti

447/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1028 frá 20. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar skilgreiningu á flóknum, vél­knúnum loftförum og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 1040-1044.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 72. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 8. apríl 2025.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica