Innviðaráðuneyti

280/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/566 frá 11. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 289/2023 frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 16. nóvember 2023, bls. 504-509.

 

2. gr.

Við 2. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2023)1569 frá 10. mars 2023 um breyt­ingu á framkvæmdarákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráð­staf­anir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, sbr. ákvörðun sam­eigin­­legu EES-nefndarinnar nr. 289/2023 frá 27. október 2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 19. febrúar 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica