Innviðaráðuneyti

1302/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/217 frá 1. febrúar 2023 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar ósamræmi í kröfum sem inn­leiddar voru með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 og reglugerðum (ESB) 2021/1296 og (ESB) 2021/2237, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187 frá 5. júlí 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 79-81.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 93. gr. og 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 16. nóvember 2023.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica