Innviðaráðuneyti

758/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 180/2016 um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum.

1. gr.

Í stað orðanna "25 m.kr." í 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 31,6 m.kr. sem tekur árlegum breytingum í samræmi við vísitölu byggingarkostnaðar mælda í janúar ár hvert, í samanburði við vísitölu bygg­ingarkostnaðar mælda í maí 2022.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 1. júní 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica