Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1466/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/2226 frá 23. desember 2020 um tiltekna þætti flugöryggis að því er varðar lok aðlögunartímabilsins sem kveðið er á um í samn­ingn­um um útgöngu Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Evrópu­sambandinu og Kjarnorkubandalagi Evrópu, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2020 frá 30. desember 2020.

 

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/2226, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. desember 2020.

 

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica