Dómsmálaráðuneyti

876/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála, nr. 516/2011.

1. gr.

1. tl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Rökstuddur grunur sé um að verið sé að fremja alvarlegt brot, eða reynt verði að fremja alvar­legt brot, sem varðað getur að lágmarki átta ára fangelsi eða brot gegn 108. gr., 109. gr., 128. gr., 175. gr. a., 2. og 3. mgr. 202. gr., 206. gr., 244. gr., 245. gr., 247. gr., 248. gr., 249. gr., 249. gr. a., 250. gr., 251. gr., 254. gr., 262. gr., 264. gr. eða 264. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 117. gr., 123. gr. og 124. gr., sbr. 146. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, 41. gr. a. samkeppnis­laga nr. 44/2005 eða 4. mgr. 2. gr., sbr. 4. gr. eða 4. gr. a. og 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 89. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 13. júlí 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica