Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

584/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný 3. málsgrein svohljóðandi:

Ríkislögreglustjóra er heimilt að gefa út stafrænt ökuskírteini til viðbótar við hefðbundið öku­skírteini. Á stafrænu ökuskírteini skulu koma fram sömu upplýsingar og á hefðbundnu ökuskírteini, sbr. 3. kafla 1. viðauka við reglugerð þessa. Stafrænt ökuskírteini gefið út af ríkislögreglustjóra hefur á íslensku yfirráðasvæði sama gildi og hefðbundið ökuskírteini. Handhafi stafræns öku­skírteinis ber ábyrgð á að stafrænt öku­skírteini sé virkt og aðgengilegt við umferðareftirlit.

 

2. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Umsókn um stafrænt ökuskírteini fer fram á vefsvæðinu www.island.is á því formi sem ríkis­lögreglu­stjóri ákveður.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 11. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 11. júní 2020.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica