Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

536/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 914/2014 um EES-gerðir sem falla undir tilskipun 2009/22/EB og vernda hagsmuni neytenda.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á undan 13. tölul. sem verður 14. tölul., kemur nýr 13. tölul., svohljóðandi: Tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins 2008/48/EB frá 23. apríl 2008 um lánasamninga fyrir neytendur og um niðurfellingu tilskipunar ráðsins 87/102/EBE.
  2. Við bætast tveir nýir töluliðir, 15. og 16. tölul. svohljóðandi:
    1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/11/ESB frá 21. maí 2013 um lausn deilu­mála neytenda utan dómstóla: 13. gr.
    2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 524/2013 frá 21. maí 2013 um lausn deilu­mála neytenda með rafrænni málsmeðferð á netinu (reglugerð um lausn deilu­mála neytenda með rafrænni málsmeðferð á netinu (ODR)): 14. gr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laga um lögbann og dóms­mál til að vernda heildarhagsmuni neytenda nr. 141/2001, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. maí 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Daði Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica