Dómsmálaráðuneyti

402/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir nr. 166/2016 með síðari breytingum.

1. gr.

16. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Verð hverrar getraunaraðar skal vera 14 kr.

 

2. gr.

Á eftir 2. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar kemur ný mgr. svohljóðandi:

Ef ákvarða þarf með hlutkesti úrslit meira en helmings leikja á getraunaseðli ógildist getrauna­seðillinn og skal þátttökugjaldið þá endurgreitt.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um getraunir nr. 59/1972. Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar öðlast þegar gildi og 1. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 18. maí 2020.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 28. apríl 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica