Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

114/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ný grein, 53. gr. a, svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Önnur ákvæði.

  1. Serbía, hvað varðar Belgrad Nikola Tesla flugvöll, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngildi sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almennings­flugi.
  2. Ísrael, hvað varðar Ben Gurion flugvöll, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að beiti flug­verndar­kröfum sem jafngildi sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, að því er varðar vernd loftfara og skimun farþega og handfarangurs.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 16. febrúar 2020 að því er varðar Serbíu en 1. apríl 2020 að því er varðar Ísrael.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 5. febrúar 2020.

 

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica