Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1053/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/413 frá 14. mars 2019 um breyt­ingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar þriðju lönd sem viður­kennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngilda sameiginlegum grunnkröfum um flug­vernd í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, frá 16. maí 2019, bls. 32‑38.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngu­samnings.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. nóvember 2019.

 F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica