Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

449/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

1. gr.

Á eftir 8. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar verður til ný málsgrein svohljóðandi:

Ökumaður ökutækis sem skráð er til neyðaraksturs er við akstur ökutækisins undanþeginn kröfum um réttindi til aksturs í atvinnuskyni, að undanskildum aldursskilyrðum. Hann skal hafa fulln­aðar­skírteini fyrir B-flokk og gild ökuréttindi til að stjórna ökutækinu eftir því sem við á.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 50. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 2. maí 2019.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir. 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica