Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

322/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, Ákvæði til bráðabirgða II, sem verður svo­hljóðandi:

Ákvæði VII. kafla er fjalla um ökuskírteini sem gefin eru út í aðildarríkjum Evrópska efnahags­svæðisins gilda einnig um ökuskírteini gefin út í Bretlandi.

2. gr.

Reglugerð þessi fellur brott að einu ári liðnu frá gildistöku hennar.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 52. og 54. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. apríl 2019.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica