1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 53. gr. a, svohljóðandi ásamt fyrirsögn:
Önnur ákvæði.
Ísrael, hvað varðar Ben Gurion flugvöll, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngildi sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, að því er varðar lestarfarangur.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. febrúar 2019.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 21. janúar 2019.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.