Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1157/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1174/2012 um alþjóðlegt reiki á almennum farsímanetum innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samn­ingsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 531/2012 frá 13. júní 2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Bandalagsins, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 67, dagsett 29. nóvember 2012, á bls. 487, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2012 frá 28. september 2012.
  2. 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2020 frá 25. nóvember 2015 um ráðstafanir varðandi opinn netaðgang og um breytingu á tilskipun 2002/22/EB um alþjón­ustu og réttindi notenda að því er varðar rafræn fjarskiptanet og -þjónustu og reglu­gerð (ESB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Sambandsins, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, dagsett 12. maí 2016, á bls. 1459, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2016 frá 29. apríl 2016.
  3. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/920 frá 17. maí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 531/2012 að því er varðar heildsölumarkaði fyrir reiki, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40, dagsett 29. júní 2017, bls. 296, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2017 frá 13. júní 2017.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2286 frá 15. desember 2016 um ítarlegar reglur um beitingu viðmiðunarreglna um eðlilega notkun og um aðferðafræði til að meta sjálfbærni afnáms aukagjalds á reiki í smásölu og um umsóknina sem veitandi reikiþjónustu þarf að leggja fram vegna þess mats, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 40, dagsett 29. júní 2017, bls. 106, sbr. ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 105/2017 frá 13. júní 2017.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2311 frá 13. desember 2017 um vegið meðaltal hæsta verðs fyrir lúkningu símtala í farsíma í Sambandinu og um niður­fellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2292, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 54, dagsett 23. ágúst 2018, bls. 307, sbr. ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 151/2018 frá 6. júlí 2018.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 35. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti með síðari breyt­ingum og öðlast þegar gildi, en skal vera komin til framkvæmda eigi síðar en 1. febrúar 2019.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. desember 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica