Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1081/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi.

1. gr.

Innleiðing.

Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1065 frá 27. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar sjálfvirka fullgildingu flugliðaskírteina í Sambandinu og þjálfun í flugtaki og lendingu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217 frá 26. október 2018, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 414.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr., 3. mgr. 32. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. nóvember 2018.

F. h. r.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Jónas Birgir Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica