Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

435/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).

1. gr.

8. gr. skal bera heitið Innleiðing og hljóða svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn, skulu gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af viðaukanum, 1. bókun um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.

Með reglugerð þessari eru innleiddar og öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB frá 7. júlí 2010 um ramma um útbreiðslu skynvæddra samgöngukerfa á sviði flutninga á vegum og um tengingu þeirra við aðra flutningsmáta, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2011, þann 30. september 2011. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 65, 1. desember 2011, bls. 13.
  2. Reglugerð (ESB) nr. 305 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar samræmda veitingu rekstrarsamhæfðs neyðarnúmers fyrir ökumenn á vegum (e. eCall) innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132 frá 2012, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 506.
  3. Reglugerð (ESB) nr. 885 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu upplýsingaþjónustu um örugg og áreiðanleg bílastæði fyrir vörubifreiðar og atvinnuökutæki innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 1046.
  4. Reglugerð (ESB) nr. 886 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar gögn og málsmeðferðarreglur svo veita megi, þar sem því verður við komið, almennar lágmarksupplýsingar sem tengjast umferðaröryggi án endurgjalds fyrir notendur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 467.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 962 frá 2015 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu umferðarupplýsingaþjónustu á rauntíma innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317 frá 2015 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 368.

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði, 9. gr., sem skal bera heitið Gildistaka og hljóða svo:

Reglugerðin er sett samkvæmt 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 24. apríl 2017.

F. h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.