Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

990/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2338 frá 11. desember 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrita, staðsetningarbúnað undir vatni og kerfi til að rekja ferðir flugvéla, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95 frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 2023.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e, 28. gr. f og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 7. nóvember 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.