Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

918/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 652/2009, um nefnd Evrópusambandsins um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, d-liður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/103 frá 27. janúar 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2099/2002 um að koma á fót nefnd um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum (COSS) sem vísað er til í 56n í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2016 frá 3. júní 2016 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/103 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, 18. ágúst 2016, bls. 441 og verður hluti af reglugerð þessari.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 24. október 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.