863/2016
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 944/2014, um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu.
1. gr.
Við lista sértækra viðmiðunarmarka í viðbæti C við II. viðauka reglugerðarinnar bætist:
Efni |
CAS-númer |
Viðmiðunarmörk |
hvarfmassi: 5-klór-2-metýl-4-ísóþíasól-3-óns [EB-nr. 247- 500-7] og 2-metýl-2H-ísóþíasól-3-óns [EB-nr. 220-239-6] (3:1) |
55965-84-9 |
1 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í vatnskenndum efnum í leikföngum |
5-klór-2-metýl-ísóþíasól-3(2H)-ón |
26172-55-4 |
0,75 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í vatnskenndum efnum í leikföngum |
2-metýlísóþíasól-3(2H)-ón |
2682-20-4 |
0,25 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í vatnskenndum efnum í leikföngum |
1,2-bensísóþíasól-3(2H)-ón |
2634-33-5 |
5 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í vatnskenndum efnum í leikföngum í samræmi við aðferðirnar sem mælt er fyrir um í EN 71-10:2005 og EN 71-11:2005 |
Formamíð |
75-12-7 |
20 μg/m³ (viðmiðunarmörk fyrir losun) að hámarki 28 dögum eftir að prófun á losun frauðleikfangaefna sem innihalda meira en 200 mg/kg hefst (þröskuldsgildi byggt á innihaldi) |
2. gr.
Við 30. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2015/2115/ESB um breytingu á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar formamíð, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2016 frá 5. febrúar 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, 31. mars 2016, bls. 91-93.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2015/2117/ESB um breytingu á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar klórmetýlísóþíasólínón og metýlísóþíasólínón, bæði stakt efni og í hlutfallinu 3:1, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2016 frá 5. febrúar 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, 31. mars 2016, bls. 97-99.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2015/2116/ESB um breytingu á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar bensísóþíasólínón, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2016 frá 5. febrúar 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, 31. mars 2016, bls. 94-96.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 10. gr. og 3. mgr. 13. gr., sbr. einnig 3. mgr. 27. gr. laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu nr. 134/1995, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 6. október 2016.
F. h. r.
Guðbjörg Sigurðardóttir.
Vera Sveinbjörnsdóttir.