Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 5. mars 2024

75/2016

Reglugerð um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um skilyrði fyrir hönnun og öruggum rekstri flugvalla á Evrópska efnahagssvæðinu.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um þá flugvelli sem falla undir gildissvið reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 91/670/EBE, reglugerðar (EB) nr. 1592/2002 og tilskipunar 2004/36/EB. Þeir flugvellir eru Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur. Reglugerð nr. 464/2007 gildir því ekki að því er varðar þessa flugvelli.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari eru eftirfarandi reglugerðir innleiddar:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 139/2014 frá 12. febrúar 2014 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 164 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 212.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/401 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014, að því er varðar flokkun flugbrauta, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2018 frá 31. maí 2018 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 156-157.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2148 frá 8. október 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar öryggi á flugbrautum og flugmálagögn.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1234 frá 9. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar skilyrði og verklagsreglur fyrir yfirlýsingu frá fyrirtækjum sem bera ábyrgð á að veita hlaðstjórnunarþjónustu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 417-432.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2148 frá 8. október 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar öryggi á flugbrautum og flugmálagögn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 121/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 365-392.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/208 frá 14. desember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar kröfur varðandi starfrækslu í skertu skyggni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 393-398.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2074 frá 20. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar skilgreiningu á SNOWTAM, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 399-400.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli heldur gildi sínu að því er varðar þá flugvelli sem ekki falla undir reglugerð þessa.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.