Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 31. okt. 2015

340/2015

Reglugerð um gagnatengingaþjónustu í samevrópska loftrýminu.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um kröfur um gagnatengingaþjónustu (e. data link services) í samevrópska loftrýminu.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um öll flug sem starfrækt eru í tengslum við almenna flugumferð í samræmi við blindflugsreglur innan loftrýmis sem skilgreint er í 1. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, ásamt síðari breytingum.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85 frá 3. júlí 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 20. maí 2010, bls. 123.
  2. Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/310 frá 26. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 29/2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 441/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2015 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 388.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Um leið fellur brott c-liður 4. gr. reglugerðar nr. 601/2008 um kröfur um sjálfvirkt kerfi til að skiptast á fluggögnum milli flugstjórnardeilda.

Reglugerðin kemur til framkvæmda 5. febrúar 2018.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.