Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 28. maí 2020

161/2015

Reglugerð um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að koma á sameiginlegu gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu.

2. gr. Gildissvið.

Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 1. gr. reglugerðar (ESB) nr. 391/2013 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, með síðari breytingum.

3. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 391/2013 frá 3. maí 2013 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237 frá 13. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 521.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Um leið fellur reglugerð nr. 1156/2011, um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, úr gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 9. febrúar 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.