Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 22. nóv. 2016

162/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi.

1. gr.

Eftirfarandi tveir stafliðir bætast við 11. gr. reglugerðarinnar:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 70/2014 frá 27. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, bls. 357.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 245/2014 frá 13. mars 2014 sem breytir reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 234/2014 frá 24. október 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 577.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. b, 28. gr. c, 31. og 73. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 9. febrúar 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.