Innanríkisráðuneyti

205/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 985/2011 um flugvernd. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, og breytist 61. gr. reglugerðar nr. 985/2011 í samræmi við það:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/187 frá 6. febrúar 2015 um breytingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 185/2010 að því er varðar skimun á handfarangri flugfarþega. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast jafnframt gildi hér á landi eftirfarandi ákvarðanir fram­kvæmda­stjórnar Evrópusambandsins, settar á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 300/2008 frá 11. mars 2008, um sameiginlegar reglur um flugvernd, með þeim breytingum og við­bótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, og breytist 2. mgr. 61. gr. reglugerðar nr. 985/2011 í samræmi við það:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. C(2015)561, lokaútgáfa frá 6. febrúar 2015 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. C(2010)774/ESB að því er varðar skimun á handfarangri flugfarþega.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. C(2015)984, lokaútgáfa frá 19. febrúar 2015 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. C(2010)774/ESB um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd að því er varðar farm og póst sem fluttur er inn í ríki Evrópusambandsins.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 70. gr. og 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 27. febrúar 2015.

Ólöf Nordal.

Hermann Sæmundsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica