Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

288/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara og brottfellingu reglugerðar nr. 734/2014 um breytingar á þeirri reglugerð.

1. gr. Gildissvið.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfrækslu flutningaflugs með flugvélum og þyrlum, þ.m.t. skoðanir á hlaði á loftförum flugrekenda sem eru undir öryggiseftirliti annars ríkis þegar þau lenda á flugvelli á Íslandi, og starfrækslu flugvéla, þyrlna, loftbelgja og sviffluga sem eru ekki rekin í ábataskyni.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, takmarka, fella tímabundið úr gildi eða afturkalla skírteini flugrekenda, sem stunda flutningaflug, sem nota loftför sem talin eru upp í b- og c-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

Reglugerð þessi á ekki við um flugrekstur sem fellur undir gildissvið a-liðar 2. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

2. gr. Innleiðing.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist 2. töluliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 800/2013 frá 14. ágúst 2013 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 26 frá 14. febrúar 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 696.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 734/2014 um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

Ákvæði III. viðauka varðandi almannaflug flókinna vélknúinna flugvéla og þyrlna, koma ekki til framkvæmda fyrr en 25. ágúst 2016. Ákvæði V., VI., og VII. viðauka varðandi almannaflug flugvéla, þyrlna, svifflugvéla og loftbelgja, koma ekki til framkvæmda fyrr en 25. ágúst 2016.

Innanríkisráðuneytinu, 26. mars 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.