Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 27. apríl 2021

1125/2014

Reglugerð um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að koma á frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta. Frammistöðukerfið skal stuðla að sjálfbærri þróun flugsamgöngukerfisins með því að bæta heildarskilvirkni flugleiðsöguþjónustu á meginsviðum frammistöðu, þ.e. öryggis, umhverfis, afkastagetu og kostnaðarhagkvæmni.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um loftrými Alþjóðaflugmálastofnunarinnar innan Evrópusvæðis (ICAO EUR) og Afríku- og Indlandshafssvæðis (ICAO AFI) þar sem aðildarríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eru ábyrg fyrir því að veita flugumferðarþjónustu.

3. gr. Lögbært yfirvald.

Hið lögbæra yfirvald samkvæmt reglugerð þessari er Samgöngustofa sem sér um eftirlit með framkvæmd hennar.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/123 frá 24. janúar 2019 um ítarlegar reglur um framkvæmd í tengslum við starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 677/2011, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 399.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/317 frá 11. febrúar 2019 um frammistöðu- og gjaldtökukerfi fyrir samevrópska loftrýmið og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 390/2013 og (ESB) nr. 391/2013, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 318/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 1.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1627 frá 3. nóvember 2020 um sérstakar ráðstafanir fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis fyrir samevrópska loftrýmið, vegna COVID-19, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2020 frá 11. desember 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 18. mars 2021, bls. 41-45.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.