Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

811/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 560/2009, um íslensk vegabréf.

1. gr.

Hvar sem orðið "Þjóðskrá", í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Þjóðskrá Íslands.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "trúarástæðum" í d-lið 4. mgr. kemur: trúar- eða heilsufarsástæðum.
  2. Við 4. mgr. bætist nýr stafliður, sem verður f-liður, svohljóðandi:

    1. Óheimilt er að breyta útliti umsækjanda á myndinni með hvers konar tölvu- og myndvinnslu.

3. gr.

Í stað orðanna "fimm ár" í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: tíu ár.

4. gr.

1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Lögreglustjórum, íslenskum sendiráðum, fastanefndum, ræðisskrifstofum og Þjóðskrá Íslands er heimilt að gefa út vegabréf til bráðabirgða (neyðarvegabréf) ef brýna nauðsyn ber til.

5. gr.

Í stað orðanna "fimm ár" í 1. málsl. 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar kemur: tíu ár.

6. gr.

Við 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem verður e-liður, svohljóðandi:

  1. Þjóðskrá Íslands er heimilt að miðla sýnilegum upplýsingum í vegabréfi með rafrænum hætti til viðkomandi vegabréfshafa og forsjármanna hans, ef við á.

7. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 11. gr. laga nr. 136/1998, um vegabréf, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 28. ágúst 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.