Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. júní 2018

732/2014

Reglugerð um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um kröfur um tíðnibil í talsamskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri í samevrópska loftrýminu.

2. gr. Gildissvið.

Með reglugerðinni er mælt fyrir um samræmda innleiðingu á talfjarskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri sem byggja á 8,33 kHz rásabreidd.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1079/2012 frá 16. nóvember 2012 um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 233 frá 13. desember 2013, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 488.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 657/2013 frá 10. júlí 2013 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1079/2012 um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235 frá 13. desember 2013, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 502.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2345 frá 14. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 262/2009 og um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilvísun til ICAO ákvæða, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 65/2017 frá 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 11.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2160 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilteknar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 96/2018 frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018, bls. 224.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Um leið fellur reglugerð nr. 1085/2008, um kröfur um tíðnibil í talsamskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri í samevrópska loftrýminu, úr gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.