Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 5. mars 2024

237/2014

Reglugerð um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um samræmdar kröfur til starfrækslu loftfara.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfrækslu flugvéla, þyrlna og svifflugna, þ.m.t. skoðanir á hlaði á loftförum flugrekenda sem eru undir öryggiseftirliti annars ríkis þegar þau lenda á flugvelli á Íslandi.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, takmarka, fella tímabundið úr gildi eða afturkalla skírteini flugrekenda, sem stunda flutningaflug, sem nota loftför sem talin eru upp í b- og c-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008, nema hvað varðar loftbelgi, um réttindi og ábyrgð handhafa skírteina sem og um skilyrði fyrir því að starfræksla skuli bönnuð, takmörkuð eða háð tilteknum skilyrðum í öryggisskyni.

Í reglugerðinni er einnig kveðið á um ítarlegar reglur um skilyrði og verklagsreglur að því er varðar yfirlýsingu frá flugrekendum sem stunda sérstaka starfrækslu í ábataskyni fyrir flugvélar, þyrlur og svifflugur, og starfrækslu og sérstaka starfrækslu flókinna, vélknúinna loftfara, sem er ekki í ábataskyni, og eftirlit með þeim.

Í reglugerðinni er einnig mælt fyrir um ítarlegar reglur varðandi það hvaða skilyrðum tiltekin áhættusöm, sérstök starfræksla (verkflug) í ábataskyni skuli háð, til að fá leyfi í öryggisskyni og skilyrðin fyrir útgáfu, viðhaldi, breytingu, takmörkun, tímabundinni niðurfellingu eða afturköllun slíkra leyfa.

Reglugerð þessi á ekki við um flugrekstur sem fellur undir gildissvið a-liðar 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

Reglugerð þessi gildir ekki um starfrækslu loftskipa.

Reglugerð þessi gildir ekki um starfrækslu loftbelgja, nema að því er varðar kröfur til eftirlitsstjórnvalds þegar um er að ræða starfrækslu loftbelgja annarra en tjóðraðra.

3. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

4. gr. Flugumsjón.

Flugrekendur, sem eru með sérstaka flugumsjón sem felst í undirbúningi og eftirfylgni á tilteknum þáttum flugs, skulu gera grein fyrir verksviði og ábyrgð starfsfólks sem sinnir flugumsjón í flugrekstrarhandbók.

Starfsfólk í flugumsjón skal fá þjálfun í samræmi við ICAO skjal nr. 7192 D3. Þjálfuninni skal lýst í D-hluta flugrekstrarhandbókar. Ekki er gerð krafa um að starfsfólk sem sinnir flugumsjón sé með skírteini flugumsjónarmanns.

5. gr. Trúnaðarmenn Samgöngustofu.

Samgöngustofu er heimilt að áskilja að fyrirsvarsmenn flugrekanda, þ.e. ábyrgðarmaður, flugrekstrarstjóri, tæknistjóri, yfirmaður þjálfunar, gæðastjóri, sanni kunnáttu sína og hæfni með sérstakri próftöku.

Að fenginni viðurkenningu Samgöngustofu ber þeim að starfa sem sérstakir trúnaðarmenn stofnunarinnar og skal mat Samgöngustofu meðal annars grundvallast á þeim forsendum. Komi í ljós að kunnátta eða hæfni fyrirsvarsmanns sem hlotið hefur viðurkenningu sé ábótavant eða fyrirsvarsmaður brýtur trúnað við Samgöngustofu getur hún fellt viðurkenningu sína niður til bráðabirgða eða að fullu. Samgöngustofa skal eiga endanlegt mat um viðurkenningu á trúnaðarmönnum.

6. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 965/2012 frá 25. október 2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 147/2013 frá 15. júlí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, bls. 910.
  2. Reglugerð (ESB) nr. 800/2013 frá 14. ágúst 2013 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 26 frá 14. febrúar 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 696.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 71/2014 frá 27. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við flugrekstur samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 30. október 2014, bls. 357.
  4. Reglugerð (ESB) nr. 379/2014 frá 7. apríl 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 289 frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, 5. febrúar 2014, bls. 611.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/640 frá 23. apríl 2015 um viðbótarskilyrði fyrir lofthæfi í tiltekinni starfrækslu og sem breytir reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 351.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/140 frá 29. janúar 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 382.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 83/2014 frá 29. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2014 frá 27. júní 2014 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 510.
  8. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1329 frá 31. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar starfrækslu flugrekenda í Sambandinu á loftförum sem eru skráð í þriðja landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226 frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt á bls. 1794 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 63 frá 15. október 2015.
  9. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2338 frá 11. desember 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrita, staðsetningarbúnað undir vatni og kerfi til að rekja ferðir flugvéla, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95 frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 2023.
  10. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/363 frá 1. mars 2017 um breytingu á reglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 965/2012 hvað varðar sérstakt samþykki fyrir starfrækslu eins hreyfils flugvéla með hverfihreyfli að næturlagi eða við blindflugsskilyrði og að því er varðar samþykkiskröfur fyrir þjálfun vegna hættulegs varnings fyrir sérstaka starfrækslu í ábataskyni, starfrækslu flókinna, vélknúinna loftfara, sem er ekki í ábataskyni, og sérstaka starfrækslu flókinna, vélknúinna loftfara sem er ekki í ábataskyni, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 201 frá 27. október 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 16. nóvember 2017, bls. 140.
  11. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/394 frá 13. mars 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um að fella brott flugrekstrarkröfur fyrir loftbelgi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116 frá 31. maí 2018. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 147-155.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2036 frá 9. desember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um hæfni og þjálfunaraðferðir fyrir flugliða og frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2021 frá 23. apríl 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 124-131.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/133 frá 28. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu á nýjum viðbótarlofthæfiforskriftum.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1384 frá 24. júlí 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 965/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar notkun loftfara sem eru skráð á flugrekandaskírteini, í starfrækslu sem er ekki í ábataskyni og í sérstakri starfrækslu, ákvörðun rekstrarlegra krafna í tengslum við framkvæmd reynsluflugs vegna viðhalds, ákvörðun reglna um starfrækslu sem er ekki í ábataskyni þar sem öryggis- og þjónustuliðum um borð hefur verið fækkað og innleiðingu ritstjórnarlegra uppfærslna varðandi kröfur um flugrekstur.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1387 frá 1. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um útreikninga á afkastagetu flugvélar við lendingu og viðmiðin til að meta ástand yfirborðs flugbrautar, uppfærslu á tilteknum búnaði og kröfum sem varða öryggi loftfara sem og starfrækslu án þess að hafa undir höndum fjarflugsleyfi.
  16. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1176 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn.
  17. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/97 frá 28. janúar 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.
  18. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1042 frá 23. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða stuðningsáætlanir, sálrænt mat á flugáhöfn, sem og kerfisbundna og handahófskennda skimun fyrir geðvirkum efnum til að tryggja heilbrigði flugliða og öryggis- og þjónustuliða og að því er varðar uppsetningu á landslagsgreiningarkerfi í nýlega framleiddar flugvélar, knúnar hverfihreyflum með 5.700 kg skráðan hámarksflugtaksmassa eða minna og sem samþykktar hafa verið til að bera sex til níu farþega, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 442-447.
  19. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/745 frá 4. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1042 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 223/2020 frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 696-697.
  20. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/217 frá 1. febrúar 2023 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar ósamræmi í kröfum sem innleiddar voru með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 og reglugerðum (ESB) 2021/1296 og (ESB) 2021/2237, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187 frá 5. júlí 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 79-81.
  21. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1975 frá 14. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar flugrekstrarkröfur um svifflugur og rafrænar flugtöskur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 485-495.
  22. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/133 frá 28. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu á nýjum viðbótarlofthæfiforskriftum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 534-538.
  23. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1384 frá 24. júlí 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 965/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar notkun loftfara, sem eru skráð á flugrekandaskírteini, í starfrækslu sem er ekki í ábataskyni og í sérstakri starfrækslu, ákvörðun rekstrarlegra krafna í tengslum við framkvæmd reynsluflugs vegna viðhalds, ákvörðun reglna um starfrækslu sem er ekki í ábataskyni þar sem öryggis- og þjónustuliðum um borð hefur verið fækkað og innleiðingu ritstjórnarlegra uppfærslna varðandi kröfur um flugrekstur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 676-710.
  24. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1387 frá 1. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um útreikninga á afkastagetu flugvélar við lendingu og viðmiðin til að meta ástand yfirborðs flugbrautar, uppfærslu á tilteknum búnaði og kröfum sem varða öryggi loftfara sem og starfrækslu án þess að hafa undir höndum fjarflugsleyfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 711-733.
  25. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1176 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 941-942.
  26. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/97 frá 28. janúar 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1033-1038.
  27. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1296 frá 4. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um gerð eldsneytis-/orkuáætlunar og stjórnun eldsneytis-/orkunotkunar og að því er varðar kröfur um stuðningsáætlanir og sálrænt mat á flugáhöfn sem og skimanir fyrir geðvirkum efnum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 971-994.
  28. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2237 frá 15. desember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur varðandi starfrækslu í skertu skyggni og varðandi þjálfun og próf fyrir flugliða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 995-1030.
  29. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1254 frá 19. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2023 frá frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 407-417.
  30. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2203 frá 11. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar gildissvið krafnanna um staðsetningu loftfars í nauð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 401-402.
  31. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/217 frá 1. febrúar 2023 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar ósamræmi í kröfum sem innleiddar voru með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 og reglugerðum (ESB) 2021/1296 og (ESB) 2021/2237, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2023 frá 5. júlí 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 79-81.

7. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 31. gr., 4. mgr. 37. gr., 80. gr., 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 8. apríl 2014. Um leið falla reglugerð nr. 1263/2008, um flutningaflug flugvéla, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 752/2007 um úttektir á öryggi loftfara, með síðari breytingum, úr gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.