Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

967/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar og framleiðslufyrirtækja nr. 380/2013.

1. gr.

Við 3. gr. bætist nýr tl. svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 7/2013 frá 8. janúar 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 128/2013 frá 14. júní 2013. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 27. júní 2013, bls. 180.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 29. október 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.