Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

150/2013

Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta.

1. gr.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir framlög til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997, með síðari breytingum, og gildandi reglugerð um húsaleigubætur.

2. gr.

Heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta eru eftirfarandi:

  1. Allt að 11,5% af tekjum sjóðsins skv. a-lið 8. gr. a laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, sbr. e-lið 11. gr. sömu laga.
  2. Framlag úr ríkissjóði er nemur 60% af þeim heildarkostnaði sem leiðir af hækkun húsaleigubóta og greiðslu sérstakra húsaleigubóta á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur frá 7. apríl 2008.
  3. Framlag úr ríkissjóði er nemur kostnaðarauka þeim er verður við innleiðingu á fyrsta áfanga að nýju kerfi húsnæðisbóta 1. janúar 2013.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga. Í október ár hvert skal liggja fyrir tillaga ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs til ráðherra um áætlað greiðsluhlutfall sjóðsins til sveitarfélaga á næsta ári.

Við úthlutun framlaga til einstakra sveitarfélaga skal miða við grunnfjárhæðir húsaleigubóta samkvæmt gildandi reglugerð um húsaleigubætur.

3. gr.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga skulu greidd ársfjórðungslega. Greiðslurnar skulu inntar af hendi eigi síðar en 20 dögum frá lokum ársfjórðungsins, þ.e. 20. apríl, 20. júlí, 20. október og 20. janúar, ár hvert enda hafi fullnægjandi umsókn ásamt skilagrein borist sjóðnum a.m.k. 10 dögum fyrir greiðsludag. Heimilt er þó að greiða sveitarfélögum mánaðarlega innborgun inn á áætlað framlag ársfjórðungsins, sbr. 1. málslið.

Berist fullnægjandi umsókn ásamt skilagrein síðar en tilgreint er í 1. mgr. frestast greiðsla fram á næsta tilgreindan greiðsludag. Framlög falla niður hafi fullnægjandi gögn ekki borist innan 6 mánaða frá greiðsludegi viðkomandi tímabils.

Við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skal sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu til þess að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga fara fram úr áætlunum þeirra, sbr. 2. mgr. 4. gr. eða fjármagn skv. 1. mgr. 2. gr. reynist minna en áætlað var í upphafi árs. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á greiðslum til sveitarfélaga vegna fyrra árs skal fara fram þegar endanlegar tekjur Jöfnunarsjóðs vegna þess árs liggja fyrir. Heimilt er að greiða kostnað Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þessa verkefnis áður en að endanlegu uppgjöri kemur.

4. gr.

Sveitarfélög skulu skila umsóknum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga inn í rafrænt umsjónar- og úrvinnslukerfi sjóðsins, þar sem skrá skal kennitölu, nafn, lögheimili og aðsetur þeirra sem hafa fengið greiddar húsaleigubætur, ásamt upplýsingum um fjárhæðir bóta, tegund leiguhúsnæðis og leigufjárhæð.

Sveitarfélög skulu jafnframt með rafrænum hætti skila fyrir 1. október ár hvert áætlun til Jöfnunarsjóðs um heildargreiðslur húsaleigubóta næsta árs miðað við grunnfjárhæðir bóta, sbr. 3. mgr. 2. gr.

Sveitarfélög skulu skila fyrir 1. febrúar ár hvert yfirliti yfir greiðslur húsaleigubóta fyrra árs undirrituðu af framkvæmdastjóra sveitarfélagsins og staðfestu af löggiltum endurskoðanda sveitarfélagsins. Komi fram mismunur á staðfestu yfirliti frá endurskoðanda og innsendum ársfjórðungslegum umsóknum sveitarfélags vegna sama árs skal gerð grein fyrir þeim mismun. Greinargerðin skal fylgja staðfestingu endurskoðanda. Jafnframt er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að kalla eftir frekari upplýsingum og gögnum frá viðkomandi sveitarfélagi ef ástæða þykir til.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Þá fellur jafnframt úr gildi reglugerð, nr. 122/2003 með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 4. gr. skulu sveitarfélög skila áætlun til Jöfnunarsjóðs um heildargreiðslu húsaleigubóta vegna ársins 2013 fyrir 20. febrúar 2013.

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2. gr. skal tillaga ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs til ráðherra um áætlað greiðsluhlutfall sjóðsins til sveitarfélaga á árinu 2013 liggja fyrir eigi síðar en 28. febrúar 2012.

Innanríkisráðuneytinu, 14. febrúar 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.