Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1161/2012

Reglugerð um samræmi við skuldbindingar fánaríkja.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB frá 23. apríl 2009 um samræmi við kröfur fánaríkis, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2012 frá 30. mars 2012, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 43, 2. ágúst 2012, bls. 53 að því er varðar tilskipun 2009/21/EB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, 5. júlí 2012, bls. 12.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 6/1996 um Siglingastofnun Íslands og öðlast þegar gildi.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB frá 23. apríl 2009 um samræmi við kröfur fánaríkis.

Innanríkisráðuneytinu, 30. nóvember 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.