Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1046/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, nr. 923 29. nóvember 2001, með síðari breytingum.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. reglugerð nr. 1002 3. desember 2010, orðast svo:

Verð ársmiða er 14.400 kr. en endurnýjunarverð í hverjum flokki 1.200 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, nr. 18 22. apríl 1959, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013.

Innanríkisráðuneytinu, 6. desember 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.