Innanríkisráðuneyti

1156/2011

Reglugerð um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu. - Brottfallin

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að koma á sameiginlegu gjaldtökukerfi fyrir flug­leiðsöguþjónustu.

2. gr.

Gildissvið.

Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1794/2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, með síðari breytingum.

3. gr.

Lögbært yfirvald.

Flugmálastjórn Íslands telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópu­sambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samnings­ins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1794/2006 frá 6. desember 2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, 2. desember 2010, bls. 563, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 91/2007 frá 6. júlí 2007, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, 13. desember 2007, bls. 28.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1191/2010 frá 16. desember 2010 um breytingu á reglugerð nr. 1794/2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 59, 27. október 2011, bls. 552, sbr. ákvörðun sameigin­legu nefndarinnar nr. 81/2011 frá 1. júlí 2011, birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 54, 6. október 2011, bls. 66.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Með þessari reglugerð fellur úr gildi reglugerð nr. 1020/2008 um sameiginlegt gjaldtöku­kerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu.

Innanríkisráðuneytinu, 2. desember 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica