Alþjóðlega SI-mælieiningakerfið, sbr. 1. gr. reglugerðar um mælieiningar.
1. SI-MÆLIEININGAR OG MARGFELDISEININGAR.
1.1. SI-grunneiningar.
Magn | Eining |
Heiti | Tákn |
Tími | sekúnda | s |
Lengd | metri | m |
Massi | kíló | kg |
Rafstraumur | amper | A |
Varmafræðilegt hitastig | kelvin | K |
Efnismagn | mól | mol |
Ljósstyrkur | kandela | cd |
SI-grunneiningarnar eru skilgreindar með eftirfarandi hætti:
Tímaeining.
Sekúnda, tákn s, er SI-einingin fyrir tíma. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir sesíumtíðnina ΔνCs, sem er umskiptatíðnin milli tveggja ofurfínna stiga í ótrufluðu grunnástandi hjá sesíum-133-atóminu, vera 9 192 631 770 þegar það er gefið upp í einingunni Hz sem er jöfn s-1.
Lengdareining.
Metri, tákn m, er SI-einingin fyrir lengd. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir hraða ljóss í lofttæmi c vera 299 792 458 þegar það er gefið upp í einingunni m/s þar sem sekúnda er skilgreind með tilliti til ΔνCs.
Massaeining.
Kíló, tákn kg, er SI-einingin fyrir massa. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir Plancks-stuðulinn h vera 6,626 070 15 × 10-34 þegar það er gefið upp í einingunni J s, sem er jöfn kg m² s-1, þar sem metri og sekúnda eru skilgreind með tilliti til c og ΔνCs.
Rafstraumseining.
Amper, tákn A, er SI-einingin fyrir rafstraum. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir frumhleðslu e vera 1,602 176 634 × 10-19 þegar það er gefið upp í einingunni C, sem er jöfn A s, þar sem sekúnda er skilgreind með tilliti til ΔνCs.
Eining fyrir varmafræðilegt hitastig.
Kelvin, tákn K, er SI-einingin fyrir varmafræðilegt hitastig. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir fastann Boltzmann k vera 1,380 649 × 10-23 þegar það er gefið upp í einingunni J K‑1, sem er jöfn kg m² s-2 K-1, þar sem kíló, metri og sekúnda eru skilgreind með tilliti til h, c og ΔνCs.
Eining fyrir efnismagn.
Mól, tákn mol, er SI-einingin fyrir efnismagn. Eitt mól inniheldur nákvæmlega 6,022 140 76 × 1023 efniseindir. Þessi tala er fasta tölugildið fyrir fastann Avogadro, NA, gefið upp í einingunni mol-1 og nefnt Avogadro-talan. Efnismagn, tákn n, í kerfi er mæling á fjölda tilgreindra efniseinda. Efniseind getur verið frumeind, sameind, jón, rafeind, hvers konar önnur ögn eða tiltekinn hópur agna.
Eining fyrir ljósstyrk.
Kandela, tákn cd, er SI-einingin fyrir styrk ljóss sem beinist í tiltekna átt. Hún er skilgreind með því að láta fasta tölugildið fyrir ljósstyrk fyrir einlita geislun með tíðnina 540 × 1012 Hz, Kcd vera 683 þegar það er gefið upp í einingunni lm W-1, sem er jöfn cd sr W-1, eða cd sr kg-1 m-2 s3 þar sem kíló, metri og sekúnda eru skilgreind með tilliti til h, c og ΔνCs.
1.1.1. Sérstakt heiti og tákn SI-kerfisins um afleidda SI-einingu fyrir hita til þess að tákna hita í gráðum á selsíus.
Magn | Eining |
Heiti | Tákn |
Hitastig á selsíus | gráða á selsíus | °C |
Hitastig á selsíus t er skilgreint sem munurinn t = T - T0 milli tveggja varmafræðilegra hitastiga T og T0 þar sem T0 = 273,15 K. Heimilt er að gefa upp bil hitastigs eða mismun á því annaðhvort samkvæmt kelvin eða í gráðum á selsíus. Einingin "gráða á selsíus" jafngildir einingunni "kelvin".
1.2. Afleiddar mælieiningar alþjóðlega mælieiningakerfisins.
1.2.1. […] .
1.2.2. Almenn regla um afleiddar mælieiningar alþjóðlega mælieiningakerfisins.
Mælieiningar sem eru leiddar (kerfisbundið) út frá grunneiningum alþjóðlega mælieiningakerfisins eru gefnar upp sem algebruyrðingar í formi margfelda grunneininga í heilum veldum og margfeldið hefur tölugildið 1.
1.2.3. Afleiddar mælieiningar alþjóðlega mælieiningakerfisins, sem eiga sér sérstök heiti og tákn.
Stærð | Mælieining | Táknað sem |
Heiti | Tákn | Aðrar SI-mælieiningar | Grunneiningar |
Flatarhorn | radan | rad | | m m-1 |
Rúmhorn | steradian | sr | | m2m-2 |
Tíðni | hertz | Hz | | s-1 |
Kraftur | newton | N | | m kg s-2 |
Þrýstingur, spenna | pascal | Pa | N m -2 | m-1 kg s-2 |
Orka, vinna, varmi | joule | J | N m | m2kg s-2 |
Afl(1), geislaflæði | watt | W | J s-1 | m2kg s-3 |
Rafhleðsla | coulomb | C | | s A |
Rafspenna, íspenna | volt | V | W A-1 | m2kg s-3 A-1 |
Rafviðnám | ohm | Ω | V A-1 | m2kg s-3 A-2 |
Rafleiðni | siemens | S | A V-1 | m-2 kg-1 s3 A2 |
Rýmd | farad | F | C V-1 | m-2 kg-1 s4 A2 |
Segulflæði | eber | Wb | V s | m2 kg s-2 A-1 |
Segulstyrkur | tesla | T | Wb m-2 | kg s-2 A-1 |
Span (spanstuðull) | henry | H | Wb A-1 | m2 kg s-2 A-2 |
Ljósflæði | lumen | lm | cd sr | cd |
Birta (lýsing) | lux | lx | lm m-2 | m-2 cd |
Geislavirkni | becquerel | Bq | | s-1 |
Geislaskammtur | gray | Gy | j kg-1 | m2 s-2 |
Geislaálag | sievert | Sv | J kg-1 | m2 s-2 |
Hvatavirkni | katal | kat | | mol s-1 |
1) Sérstök heiti á afleiningu: Heitið Voltamper (táknað „VA“) er notað til að tákna sýndarafl riðstraums og heitið var (tákn „var“) er notað til að tákna launafl. „VA“ er ekki skráð í ályktunum almenna þingsins um mál og vog.
Mælieiningar sem leiddar eru af grunneiningum alþjóðlega mælieiningakerfisins eða viðbótareiningum þess er heimilt að gefa upp í þeim mælieiningum sem skráðar eru í þessum viðauka.
Einkanlega er hægt að gefa afleiddar alþjóðlegar einingar upp með sérstökum heitum og táknum sem sýnd eru í töflunni hér að ofan. Til dæmis er hægt að gefa upp alþjóðlegu mælieininguna fyrir skriðseigju ýmist sem m-1 kg s-1 eða N s m-2 eða Pa s.
1.3. Forskeyti og tákn þeirra sem notuð eru til að tákna tiltekin tugveldi.
Tugveldi | Forskeyti | Tákn | Tugveldi | Forskeyti | Tákn |
1024 | jotta | Y | 10-1 | desi | d |
1021 | setta | Z | 10-2 | senti | c |
1018 | exa | E | 10-3 | milli | m |
1015 | peta | P | 10-6 | míkró | μ |
1012 | tera | T | 10-9 | nanó | n |
109 | gíga | G | 10-12 | píkó | p |
106 | mega | M | 10-15 | femtó | f |
103 | kíló | k | 10-18 | attó | a |
102 | hektó | h | 10-21 | septó | z |
101 | deka | da | 10-24 | joctó | y |
Heitin og táknin fyrir margfeldiseiningar massa eru mynduð með því að bæta forskeytum við orðið „gramm“ og táknum þeirra framan við táknið „g“.
Sé afleidd mælieining gefin upp sem almennt brot er hægt að gefa til kynna tugveldi hennar með því að bæta forskeytunum við mælieiningar í teljara eða nefnara eða hvoru tveggja.
Óheimilt er að nota samsett forskeyti, þ.e. forskeyti sem búin eru til með því að raða saman ofangreindum forskeytum.
1.4. Sérstök leyfileg heiti og tákn fyrir margfeldiseiningar.
Stærð | Mælieining |
Heiti | Tákn | Gildi |
Rúmmál | lítri | 1 eða L 1) | 1 1 = 1 dm3 = 10-3 m3 |
Massi | tonn | t | 1 t = 1 Mg = 103 kg |
Þrýstingur, álag | bar | bar 2) | 1 bar = 105 Pa |
1) Heimilt er að nota táknin tvö „1“ og „L“ fyrir mælieininguna lítra.
2) Þessi mælieining er skráð í riti Alþjóðlegu mælifræðistofnunarinnar (Bureau International des Poids et Mesures) meðal mælieininga sem leyfðar eru tímabundið.
Ath: Forskeytin og tákn þeirra sem skráð eru í 1.3 er heimilt að nota með mælieiningunum og táknum þeirra sem eru skráð í töflu 1.4.
2. MÆLIEININGAR SEM SKILGREINDAR ERU Á GRUNNI SI-KERFISINS EN ERU EKKI MARGFELDISEININGAR
Stærð | Mælieining | Gildi |
Heiti | Tákn |
Flatarhorn | snúningur*(1)(a) nýgráða* eða gon* gráða (horns) mínúta (horns) sekúnda (horns) | gon* ° ' " | 1 snúningur = 2 π rad 1 gon = π /200 rad 1° = π /180 rad 1' = π /10 800 rad 1" = π /648 000 rad |
Tími | mínúta klukkustund sólarhringur | min h d | 1 min = 60 s 1 h = 3 600 s 1 d = 86 400 s |
(1) Táknið (*) á eftir mælieiningarheiti eða tákni merkir að það komi ekki fyrir í skrám sem gefnar hafa verið út af CGPM, CIPM eða Alþjóðlegu mælifræðistofnuninni. Þetta gildir um allan þennan viðauka.
(a) Ekki er til neitt alþjóðlegt tákn.
Ath: Forskeytin sem talin eru upp í 1.3 er einungis heimilt að nota með heitunum „nýgráða“ eða „gon“ og tákninu „gon“.
3. MÆLIEININGAR, SEM ERU NOTAÐAR Í ALÞJÓÐLEGA MÆLIEININGAKERFINU, EN GILDI ÞEIRRA ERU FENGIN MEÐ TILRAUNUM
Stærð | Heiti | Mælieining Tákn | Skilgreining |
Orka Massi | Rafeindavolt Atómmassaeining | eV u | Rafeindavolt er hreyfiorkan sem rafeind fær við að hreyfast gegnum 1 V spennumun í lofttæmi. Atómmassaeining er einn tólfti hluti massa einnar frumeindar aðalsamsætu frumefnisins 12C. |
Ath: Forskeytin og tákn þeirra sem eru skráð í 1.3 er heimilt að nota með þessum tveimur mælieiningum og táknum þeirra.
4. MÆLIEININGAR OG HEITI MÆLIEININGA SEM EINVÖRÐUNGU ERU HEIMIL Á TILTEKNUM SÉRSVIÐUM
Stærð | Mælieining | Gildi |
Heiti | Tákn |
Ljósbrot sjóntækja | dioptre* | | 1 dioptre = 1 m-1 |
Massi eðalsteina | karat | | 1 karat = 2x10-4 kg |
Flatarmál bújarða og byggingarlóða | ari | a | 1 a = 102 m2 |
Massi á lengdareiningu textilþráða og garns | tex* | tex* | 1 tex = 10-6 kg m-1 |
Þrýstingur blóðs og annarra líkamsvökva | millimetri kvikasilfurs | mm Hg(*) | 1 mm Hg =133,322 Pa |
Þversnið áhrifasvæðis | barn | b | 1 b = 10-28 m2 |
Ath: Forskeytin og tákn þeirra sem eru talin upp í lið 1.3 er heimilt að nota með ofangreindum mælieiningum og táknum, en þó ekki með millimetra kvikasilfurs og tákni hans. Margfeldið 102 a heitir þó „hektari“.
5. SAMSETTAR MÆLIEININGAR
Samsettar mælieiningar verða til með því að setja saman mælieiningar viðaukans.