Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 20. des. 2012

122/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

I. KAFLI Breyting á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010.

1. gr.

9. gr. orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 488/1997 um almannaflug með síðari breytingum.

II. KAFLI Breyting á reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

2. gr.

9. gr. orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2013.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 31. janúar 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.