Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1064/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýr kafli, er verður I. kafli, Almenn ákvæði. Breytist númera­röð annarra kafla til samræmis. 1. gr. reglugerðarinnar færist undir nýjan I. kafla.

2. gr.

18. gr. reglugerðarinnar verður 2. gr. og breytist númeraröð annarra greina til sam­ræmis. Ný 2. gr. hljóðar svo:

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar reikningsskila- og upplýsinganefnd til fjög­urra ára í senn. Nefndin skal skipuð fimm fulltrúum. Tveir fulltrúar eru skipaðir sam­kvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, einn fulltrúi skipaður sam­kvæmt tilnefningu Hagstofu Íslands og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera lög­giltur endurskoðandi. Fimm varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.

Nefndin skal fjalla um og skilgreina upplýsingar sem sveitarfélög skulu veita og byggja meðal annars á reikningsskilum sveitarfélaga sem gerð eru á grundvelli laga um ársreikninga og sveitarstjórnarlaga. Í því sambandi skal nefndin semja reglur um skýrslu­gjöf sveitarfélaga um fjárhagsleg málefni og aðrar upplýsingar, svo sem um raf­ræn skil ársreikninga og fjárhagsáætlana, auk annarra fjárhagslegra upplýsinga sveitar­félaga, sbr. 17. gr.

Nefndin hefur jafnframt frumkvæði að því að skilgreina í samstarfi við sveitarfélög hvaða fjárhagslegra upplýsinga þörf er á að afla í þágu opinberra aðila, einkum er varðar upplýsingar sem ekki koma fram í ársreikningum. Nefndin skal í því sambandi vinna að söfnun og samræmingu ársfjórðungslegra upplýsinga frá sveitarfélögum.

Nefndin skal í störfum sínum stuðla að samræmingu í reikningsskilum sveitarfélaga og öðrum fjárhagslegum upplýsingum þeirra eftir því sem ráðuneytið ákveður.

Nefndin skal semja reglur um þau atriði reikningsskila sveitarfélaga, sem eru sérstök fyrir þau. Nefndin skal m.a. gefa út leiðbeiningar um flokkun og greiningu gjalda og tekna, eigna og skulda sveitarfélaga, sbr. 4. og 14. gr., form fjárhagsáætlana, sbr. 11. gr., og ársreikninga, sbr. 15. og 16. gr., ef þörf krefur.

Reglur nefndarinnar skulu birtar með auglýsingu í Stjórnartíðindum eftir staðfestingu ráðu­neytisins.

Ráðuneytið skal sjá til þess að auglýsingar þess um bókhald, reikningsskil og skýrslugjöf sveitarfélaga séu aðgengilegar sveitarfélögum með útgáfu rafrænnar handbókar eða með öðrum sambærilegum hætti í samvinnu við Hagstofu Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga.

3. gr.

Í stað tilvísunar í 18. gr. í 3. gr. er verður 4. gr., 14. gr. er verður 15. gr. og 2. mgr. 16. gr. er verður 2. mgr. 17. gr., kemur tilvísun í 2. gr.

4. gr.

Í stað orðsins "félagsmálaráðuneytinu" í 1. mgr. 17. gr., er verður 18. gr., kemur: ráðuneytinu.

Í stað orðsins "félagsmálaráðuneytisins" í 1. mgr. 17. gr., er verður 18. gr., kemur: ráðuneytisins.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum 67. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, öðlast gildi 1. janúar 2010.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. desember 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica