Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

782/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir nr. 543 13. október 1995 með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

15. gr. verði svohljóðandi:

Verð hverrar getraunaraðar skal vera 16 kr. Íslenskar get­raunir og AB Svenska Spel skulu greiða 0,46 sænskar krónur í sameiginlegan getrauna­pott fyrir hverja selda röð.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um getraunir nr. 59 29. maí 1972, öðlast gildi 21. september nk.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 17. september 2009.

Ragna Árnadóttir.

Hjalti Zóphóníasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica