Samgönguráðuneyti

1019/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja. - Brottfallin

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar, er að innleiða breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja, sbr. reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja.

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 375/2007 frá 30. mars 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2007 frá 6. júlí 2007, sem birtist í 60. viðauka við EES-samninginn, 13. desember 2007, bls. 26, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 15. október 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica