Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

1126/2006

Reglugerð um vistun allsherjarskrár um kaupmála.

1. gr.

Sýslumaðurinn í Stykkishólmi skal frá og með 1. janúar 2007 halda allsherjarskrá um kaupmála.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með vísan til 1. mgr. 86. gr. hjúskaparlaga, nr. 31 14. apríl 1993, með síðari breytingum, sbr. 3. gr. laga nr. 143 15. desember 2006, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 28. desember 2006.

Björn Bjarnason.

Þorsteinn Geirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica