Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

1127/2006

Reglugerð um veitingu leyfa til útfararþjónustu.

1. gr.

Sýslumaðurinn í Vík skal frá og með 1. janúar 2007 annast veitingu leyfa til útfararþjónustu.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 50. gr., sbr. 1. mgr. 21. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993, með síðari breytingum, sbr. 4. gr. laga nr. 143 15. desember 2006, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 28. desember 2006.

Björn Bjarnason.

Þorsteinn Geirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica