Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 5. mars 2024

926/2015

Reglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.

1. gr. Markmið.

Markmið með reglugerð þessari er að auka öryggi í flugi með því að kveða á um sameiginlegar tæknikröfur, til fyrirtækja og starfsfólks og kveða á um sameiginlegar verklagsreglur og málsmeðferð til að tryggja áframhaldandi lofthæfi loftfara, þ.m.t. íhluta í þau.

2. gr. Gildissvið.

  1. Reglugerð þessi tekur til loftfara, þ.m.t. íhluta í þau, sem:

    1. eru skráð á Íslandi,
    2. eru skráð í þriðja landi en Ísland ber ábyrgð á eftirliti með rekstri flugrekandans sem notar þau.
  2. Fyrsta málsgrein gildir ekki ef lögbundið eftirlit með loftfari hefur verið falið þriðja landi og flugrekandi innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins og Fríverslunarsamtaka Evrópu notar ekki loftfarið og ekki um loftför sem um getur í II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 216/2008 frá 20. febrúar 2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA).
  3. Ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 1321/2014 er lúta að flutningaflugi taka til flugrekenda með útgefið flugrekandaskírteini í samræmi við ákvæði laga um loftferðir og reglugerðar um flutningaflug eins og hún er á hverjum tíma.

3. gr. Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að 5 árum í samræmi við viðurlagaákvæði XIII. kafla laga nr. 60/1998 um loftferðir.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1321/2014 frá 26. nóvember 2014 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2015 frá 30. apríl 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 153.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1088 frá 3. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar tilslakanir á verklagsreglum um viðhald loftfara í almannaflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2015 frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 15. október 2015, bls. 1799.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1536 frá 16. september 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar samræmingu á reglum um áframhaldandi lofthæfi við reglugerð (EB) nr. 216/2008, um brýn viðhaldsverkefni og eftirlit með áframhaldandi lofthæfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 278 frá 30. október 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, 10. desember 2015, bls. 944-976.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1142 frá 14. ágúst 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar innleiðingu á tilteknum flokkum skírteina flugvéltækna, breytingu á ferlinu við viðurkenningu íhluta frá utanaðkomandi birgjum og breytingu á heimildum viðhaldskennslufyrirtækja, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 193/2019 frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 99-154.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1383 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækja sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og tilslakanir fyrir loftför í almannaflugi að því er varðar viðhald og stjórnun á áframhaldandi lofthæfi.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/270 frá 25. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir fyrirtæki sem annast áframhaldandi lofthæfi fyrir almannaflug ásamt stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og um leiðréttingu á þeirri reglugerð.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1159 frá 5. ágúst 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1321/2014 og (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/700 frá 26. mars 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar viðhaldsgögn og ísetningu tiltekinna loftfarsíhluta meðan á viðhaldi stendur.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1383 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækja sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og tilslakanir fyrir loftför í almannaflugi að því er varðar viðhald og stjórnun á áframhaldandi lofthæfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 571.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/270 frá 25. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir fyrirtæki sem annast áframhaldandi lofthæfi fyrir almannaflug ásamt stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og um leiðréttingu á þeirri reglugerð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 796.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1159 frá 5. ágúst 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1321/2014 og (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 926.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/700 frá 26. mars 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar viðhaldsgögn og ísetningu tiltekinna loftfarsíhluta meðan á viðhaldi stendur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1077.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1963 frá 8. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi í viðhaldsfyrirtækjum og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar nr. 135/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1094.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1360 frá 28. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar framkvæmd hóflegri krafna fyrir loftför sem notuð eru í sport- og tómstundaflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 450.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., 85. gr. a, 73. gr., og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, auk reglugerða um breytingu á þeirri gerð.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.