Innanríkisráðuneyti

631/2015

Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015. - Brottfallin

1. gr.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015 nema 0,99% af álagningarstofni útsvars það ár, auk framlaga úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitar­félaga, vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. Skulu tekjurnar renna í sérstaka deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Við skil á staðgreiðslu útsvars samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda skulu Jöfnunarsjóði gerð skil á sínum hluta, sbr. 1. mgr. Fjársýsla ríkisins skal sjá um útreikning á tekjum þessum og skipta innheimtri staðgreiðslu hvers mánaðar milli ríkis, sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins skulu reiknaðar af þeim stofni sem stað­greiðsla hvers mánaðar er greidd af.

Ennfremur skal Fjársýsla ríkisins við álagningu sjá um útreikning á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari af þeim tekjum sem skattlagðar eru eftir á. Fjársýsla ríkisins skal, í uppgjöri stað­greiðslu sveitarfélaga við álagningu útsvars, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitar­félaga, taka tillit til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs og gera sjóðnum skil á henni.

Til viðbótar þeim tekjum Jöfnunarsjóðs á árinu 2015, sem tilgreindar eru í 1. mgr., eru til ráðstöfunar á árinu óráðstöfuð framlög frá fyrra ári vegna NPA (notendastýrðrar persónu­legrar aðstoðar).

2. gr.

Framlög.

Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast á árinu 2015 í: Almenn framlög til þjónustusvæða og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, framlög vegna not­enda­stýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), framlög vegna breytingakostnaðar, framlög í Fast­eigna­sjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo og sérstök viðbótarframlög.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk eru óháð öðrum fram­lögum sjóðsins.

Jöfnunarsjóður sendir sveitarfélögum upplýsingar um áætluð framlög ársins 2015 og greiðsludreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. Framlög skulu greidd mánaðarlega. Framlög skulu endurskoðuð innan ársins í samræmi við breytingar á áætluðum tekjum sjóðsins, sbr. 1. gr. og á grundvelli nýrra upplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum.

3. gr.

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015.

I. hluti: Skipting ráðstöfunarfjármagns.

Áætluðum ráðstöfunartekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015, að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlagi í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sérstökum viðbótar­framlögum, skal skipta milli sveitarfélaga sem mynda þjónustusvæði, sbr. lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, eða einstakra sveitarfélaga með eftirfarandi hætti, sbr. samkomu­lag ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu málaflokksins frá 23. nóvember 2010:

  1. 80% skiptast hlutfallslega miðað við niðurstöðu mælinga á útgjaldaþörf, sbr. II. hluta þessarar greinar.
  2. 20% skiptast hlutfallslega miðað við áætlaðan útsvarsstofn sveitarfélaga 2015.

Áætluð framlög ársins 2015 skal endurreikna sem hér segir:

Í janúar 2015 á grundvelli framlaga ársins 2014 að teknu tilliti til endanlegs álagn­ingar­stofns útsvars á árinu 2013 og endurskoðaðrar áætlunar um útsvarstekjur sveitar­félaga á árinu 2015.
Í maí 2015 á grundvelli viðbótarupplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum, sbr. 1. lið 5. mgr. II. hluta og að teknu tilliti til niðurstöðu endurmats á stuðningsþörf á árinu 2014.
Í nóvember 2015, sbr. 2., 3. og 4. lið 5. mgr. II. hluta.
Við greiðslu framlaga á árinu 2015 fer jafnframt fram leiðrétting framlaga ársins 2013 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars 2013.

Útreiknuð framlög ársins 2015 skal leiðrétta þegar endanlegur álagningarstofn útsvars ársins 2015 liggur fyrir. Upplýsingar um leiðréttingu skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. desember 2016 og skal leiðrétting framlaga til hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags koma til frádráttar/viðbótar almennum framlögum Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017. Reynist áætlun ársins 2017 lægri en frádráttur vegna ársins 2015 er heimilt að innheimta mismuninn af öðrum framlögum Jöfnunarsjóðs.

II. hluti: Mæling á útgjaldaþörf.

Við mælingu á útgjaldaþörf vegna þjónustu við fatlað fólk, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta, skal byggt á þeim upplýsingum um kostnað og stuðningsþörf einstaklinga í sérhæfðri þjónustu sem lagðar voru til grundvallar við útreikning framlaga á árinu 2014.

Við mælinguna skal greina fylgni flokka stuðningsþarfar, sbr. 7. gr., og kostnaðar á einstakling til að ákvarða viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern flokk stuðningsþarfar. Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf er heimilt að reikna gildi sem samsvarar flokkum matsins á grund­velli eldra mats. Heimilt er að reikna álag á ákveðna flokka á grundvelli sérstakrar stuðn­ings­þarfar vegna hegðunar. Ennfremur er heimilt að reikna álag vegna einstaklinga með óvenju­lega samsetningu stuðningsþarfar.

Útgjaldaþörf skal mæld með eftirfarandi aðferðum:

  1. Reikna skal útgjaldaþörf á grundvelli viðmiðunarfjárhæða fyrir hvern flokk stuðn­ings­þarfar vegna allra einstaklinga sem falla í 4. flokk samræmds mats á þjón­ustu­þörf eða ofar.
  2. Þrátt fyrir ákvæði a-liðar skal reikna útgjaldaþörf vegna einstaklinga í flokki 4 og ofar á grundvelli raunkostnaðar, ef raunkostnaður og áætlaður viðbótarkostnaður vegna ársins 2015 er lægri en 33% af einingakostnaði viðkomandi flokks. Ekki reiknast útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar, sbr. d-lið vegna einstaklinga sem falla undir þetta ákvæði.
  3. Reikna skal útgjaldaþörf vegna barna sem ekki hafa mat á þjónustuþörf á grundvelli raunkostnaðar sé hann jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  4. Reikna skal útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar fyrir alla einstaklinga sem falla í 5. flokk matsins eða ofar og er hann innifalinn í einingakostnaði viðkomandi flokka.
  5. Reikna skal útgjaldaþörf vegna áætlaðs viðbótarkostnaðar árið 2015 vegna ein­staklinga sem ekki hafa mat á þjónustuþörf og skal útreikningur fara fram þegar kostn­aður samsvarar einingakostnaði 4. flokks.
  6. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda við umsýslu fjármála, starfsmannamála og annarra skyldra rekstrarverkefna.
  7. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda af ráðgjöf og sam­hæfingu þjónustu.
  8. Samtala liða a-g myndar grunn að hlutfallslegri skiptingu fjármuna á grundvelli mældrar útgjaldaþarfar, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta þessarar greinar.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal senda þjónustusvæðum/sveitarfélögum gögn sem sýna kostnað skv. hverjum flokki matsins sem og upplýsingar um niðurstöður útreikninga ein­stakra þátta framlagsins.

Við mælingu á útgjaldaþörf skv. framangreindu vegna úthlutunar framlaga árið 2015 skal jafnframt taka tillit til eftirfarandi þátta á grundvelli viðbótarupplýsinga frá sveitarfélögum:

  1. Uppfæra skal upplýsingar um lögheimili einstaklinga í þjónustu með tilliti til flutnings þeirra milli þjónustusvæða/sveitarfélaga. Við útreikning framlaga 2015 skal miðað við lögheimili einstaklings 1. janúar 2015.
  2. Framkvæma skal samræmt mat á þjónustuþörf einstaklinga sem ekki höfðu náð 18 ára aldri við útreikning framlaganna árið 2014 en hafa náð 18 ára aldri 1. janúar 2015 sé raunkostnaður jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  3. Ennfremur skal safna upplýsingum um einstaklinga í þjónustu með viðbótarkostnaði á árinu 2015 sem samsvarar kostnaði að fjárhæð 4,4 m.kr.
  4. Framkvæma skal á árinu samræmt mat á stuðningsþörf fatlaðra barna á aldrinum 6-18 ára ásamt mati á stuðningsþörf fullorðinna vegna nýliðunar.

Þegar um tímabundna búferlaflutninga einstaklinga í þjónustu er að ræða, er þjón­ustu­svæðum heimilt að semja sín á milli um að framlög Jöfnunarsjóðs vegna þeirra einstak­linga, skv. III. hluta, flytjist milli þjónustusvæða enda þótt lögheimili viðkomandi haldist óbreytt. Slíkir samningar hafa ekki áhrif á jöfnunarframlög samkvæmt þessari reglugerð. Samband íslenskra sveitarfélaga getur gefið út leiðbeinandi viðmið um samninga sem þjón­ustu­svæði gera sín á milli.

III. hluti: Útreikningur framlaga.

Framlög til einstakra þjónustusvæða eða sveitarfélaga skulu reiknuð út sem hér segir:

  1. Þegar niðurstaða liggur fyrir skv. a- og b-lið í 1. mgr. I. hluta, skal á grunni áætlaðs útsvarsstofns ársins 2015 reikna út útsvarstekjur sem samsvara 0,25% af útsvars­stofni og sem renna skulu beint til þjónustu við fatlaða innan viðkomandi þjónustusvæðis, sbr. bráðabirgðaákvæði XII við lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, með síðari breytingum.
  2. Finna skal mismun mældrar heildarútgjaldaþarfar hvers þjónustu­svæðis/sveitar­félags skv. II. hluta og áætlaðra útsvarstekna skv. tölulið 1.
  3. Sé mæld útgjaldaþörf sveitarfélaga, sem mynda þjónustusvæði, hærri en sem nemur 0,25% hlutdeild þeirra í útsvarsstofni er mismunurinn greiddur sem almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk.

Almenn framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015 skulu nema sömu fjárhæð og áætlaðar heildartekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að frá­dregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlögum í Fasteignasjóð og sérstökum viðbótarframlögum.

4. gr.

Sérstök viðbótarframlög.

Heimilt er að greiða sérstök viðbótarframlög til þjónustusvæða/sveitarfélaga, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, til að koma til móts við þau þjón­ustusvæði/sveitarfélög þar sem um verulega íþyngjandi kostnað er að ræða við rekstur mála­flokksins á árinu 2015 umfram tekjur. Við útreikning og úthlutun sérstakra viðbótar­framlaga á árinu 2015 er heimilt að taka tillit til íþyngjandi kostnaðar þjónustu­svæða vegna sérstakra aðstæðna, svo sem vegna mikilla fjarlægða innan þjónustu­svæða. Ráðgjafarnefnd setur verklagsreglur þar um.

Við áætlanagerð almennra framlaga fyrir árið 2015, sbr. 3. gr., skal jafnframt liggja fyrir tillaga ráðgjafarnefndar sjóðsins um áætlað ráðstöfunarfjármagn til greiðslu viðbótar­framlaga á árinu.

Viðkomandi þjónustusvæðum/sveitarfélögum ber að sækja um sérstakt viðbótarframlag eigi síðar en 1. nóvember 2015. Forsenda fyrir úthlutun framlags er að með umsókn fylgi ítarleg greinargerð þar sem færð eru rök fyrir þörf þjónustusvæðis/sveitarfélags á sérstöku viðbótarframlagi á árinu.

5. gr.

Framlög vegna breytingakostnaðar.

Á árinu 2015 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga framlag vegna breytingakostnaðar til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nemur 0,14% af tekjum sjóðsins í formi 0,99% hlutdeildar í útsvarsstofni, sbr. 1. gr., vegna kostnaðar Sambandsins við verkefni er tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á árinu.

Með framlögum vegna breytingakostnaðar er að öðru leyti heimilt að greiða eftirfarandi kostnað vegna:

  1. Starfa samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks.
  2. Mats á faglegum og fjárhagslegum árangri tilfærslunnar.
  3. Vinnu að bættu eftirliti með þjónustu við fatlað fólk.
  4. Upplýsingasöfnunar, greiningar og ráðgjafar.
  5. Samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu.
  6. Útfærslu jöfnunaraðgerða og fasteignamála.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli a- til f-liða.

6. gr.

Framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Við tillögugerð ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að úthlutun framlaga til NPA skal taka mið af áætlun verkefnisstjórnar NPA.

7. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu, semur við matsaðila um framkvæmd matsins og ber kostnað af því. Heimilt er að ákveða að greiðsla kostnaðar takmarkist við mat á tilteknum fjölda einstaklinga.

Þjónustusvæði/sveitarfélög fela matsaðila, skv. 1. mgr. framkvæmd matsins á grundvelli ákvæða laga um málefni fatlaðs fólks og er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að krefja matsaðila, þjónustusvæði/sveitarfélög um niðurstöður slíks mats.

Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á stuðningsþörf, sem m.a. kveða á um hlutverk og verkefni einstakra aðila sem koma að matsferlinu. Heimilt er að skipa sérstaka ráð­gefandi vinnuhópa til að fjalla um álitaefni varðandi niðurstöður matsins. Álit slíkra hópa fela ekki í sér stjórnvaldsákvarðanir.

8. gr.

Staðfesting.

Tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra. Við setningu verklagsreglna skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.

9. gr.

Gildistaka og endurskoðun.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 13. gr. a. í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum og gilda ákvæði hennar frá 1. janúar 2015. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 nr. 242/2014.

Innanríkisráðuneytinu, 6. júlí 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica