Iðnaðarráðuneyti

15/2003

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 916/2001 um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl. - Brottfallin

1. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða félagamerkis skal greiða til Alþjóðahugverkastofnunarinnar:

Kr.
1. Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn
14.000
2. Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn
3.000


2. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fyrir umsókn um skráningu félagamerkis og endurnýjun skal greiða:

Kr.
1. Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn
14.000
2. Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn
3.000


3. gr.

16. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Kr.
Hámarksgjald vegna áfrýjunar á grundvelli laga um einkaleyfi, laga um vörumerki, laga um hönnun og laga um félagamerki
80.000
Áfrýjunargjald greiðist iðnaðarráðuneyti við afhendingu bréfs um áfrýjun.
Sé mál afturkallað áður en áfrýjunarnefnd er fullskipuð, málinu vísað frá áfrýjunarnefnd eða það vinnst þar skal endurgreiða
60.000


4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, 63. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, 53. gr. laga nr. 46/2001 um hönnun og 9. gr. laga nr. 155/2002 um félagamerki, öðlast þegar gildi.


Iðnaðarráðuneytinu, 9. janúar 2003.

Valgerður Sverrisdóttir.
Kristján Skarphéðinsson.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica