Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

452/1985

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 458, 1. nóvember 1979 fyrir Rafveitu Akureyrar.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. orðist svo:

Rafverktakaleyfisnefnd á orkuveitusvæðum 5 og 6 veitir þeim rafverktaka leyfi, sem fullnægja skilyrðum og skilmálum nefndarinnar.

2. gr.

Á eftir 4. mgr. 10. gr. komi ný mgr. svohljóðandi:

Rafveitunni er heimilt að taka heimtaugagjöld skv. gildandi gjaldskrá og er rafveitunni ekki skylt að tengja nýja heimtaug við veitukerfið fyrr en gjaldið hefur verið greitt. Breyting þessi á reglugerð fyrir Rafveitu Akureyrar, sem samin er og samþykkt of

bæjarstjórn Akureyrar, er hér með staðfest skv. vatnalögum nr. 15 frá 20. júní 1923 og orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.

Iðnaðarráðuneytið, 9. desember 1985.

Albert Guðmundsson.

Ingimar Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.